I don´t suck, it sucks, you suck

Friends

25.03.2007 20:08:38 / arna88

25.Mars

Hæ, hæ það hefur margt gerst frá því ég bloggaði síðast. Systir mín átti afmæli um daginn og ég eignaðist frænku sama dag! Hún er algjör dúlla:D!! Hún var ekkert smá stór þegar hún fæddist og algjör bolla!! Ég ákvað að fara ekki í útskriftarferðina því að mér var boðið að fara á fótboltaleik með Liverpool á Anfield, sem mig hefur langað að gera síðan ég var lítil!:haha: En svo var alltíeinu hætt við að fara þangað því að fjölskyldan vildi fara eitthvað annað en ég vildi fara eitthvert sem ég hef aldrei farið áður. Mamma sagði mér að það þyrfti að vera ódýrt vegna þess að við förum alltaf annaðhvert ár til útlanda en við fórum seinasta sumar til Danmerkur og svíþjóðar. Mamma og Pabbi vilja endilega fara aftur til Danmerkur og svíþjóðar:whut: en ég og systur mínar viljum fara eitthvað annað, systur mínar vilja fara til Liverpool en ég vil helst fara til Þýskalands eða aftur til frakklands eða til Torrevieja, reyndar er smá möguleiki að við munum keyra frá Danmörku til Þýskalands;). Alma sagðist alls ekki vilja fara til torrevieja vegna þess sem kom gerðist fyrir hana þegar við fórum þangað fyrir 3.árum sem er reyndar ekki í fyrsta skipti sem einhver úr fjölskyldunni lendir í því þegar við ferðumst í útlöndum. En þið getið lesið um það í utanlandsferðunum mínum. Um daginn fór ég á Music and Lyrics og mér fannst hún bara mjög góð og ótrúlega fyndin:haha: En núna þarf ég að hætta þarf að fara að læra.:$See ya later:D

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 11:14:16 / arna88

17.Febrúar

Hæ, hæ vá hvað ég nenni ekki að blogga!!! Já það hefur mikið gerst síðan í Nóvember og ég nenni ekki að segja frá öllu sem hefur gerst. Eftir Haustannaprófin fór ég til Reykjavíkur með mömmu, pabba og systrum mínum. En var bara í 3 daga :cry: og af því að við vorum að versla, heimsækja fullt af fólki sem ég vildi líka hitta og fara til læknis, þá gat ég ekki heimsótt hana Köllu:( Fyrstu nóttina gistum við hjá vinkonu hennar mömmu sem á heima í Hafnarfirði. Hún á 3 börn, Frans(18 eða 19), Fanndís(15 eða 16) og Nína(10 eða 11). Þau eiga ótrúlega krúttlegan dalmatíu hund sem heitir Arabella. Hún er ótrúlega mikill varðhundur og finnst gott að kúra uppí rúmi til fóta. Ég var látin sofa í sófanum og ég var bara að horfa á sjónvarpið og allir voru farnir að sofa en Arabella lá á gólfinu inni í einu svefnherberginu. Ég labbaði eitthvað niður til að ná í eitthvað og þegar ég kom aftur upp aftur og ætlaði að fara að leggjast í sófann þá var Arabella komin í dyragættina og mændi á mig.Ég lagðist uppí sófann og eftir smá stund heyrðist í henni labba til mín svo stoppaði hún við sófann og mændi á mig af því að hún beið eftir leyfi til að fá að fara uppí sófann. Hún var hjá mér mest alla nóttina en fór í smá stund og kom svo aftur. Ég svaf ekkert meðan hún var uppí hjá mér því að hún var svo pláss frek að ég kom ekki fótunum uppí sófann:D  Þegar hún kom svo aftur þá vaknaði ég við hana og sofnaði svona klukkutíma seinna aftur!!!!!!!!! En núna verð ég að fara. See ya later :haha:

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 11:11:52 / arna88

16.Nóvember!!!!

Hæhæ. Já það er búið að snjóa síðustu 4 daga á Akureyri og í fyrradag þurftum við að moka tvisvar sama daginn að útidyrahurðinni!! Snjórinn nær næstum alla leið upp að glerinu í svalarhurðinni hjá okkur og það er semsagt gjörsamlega allt á kafi. Ég fór í íó um helgina á Borat og hún er mjög fyndin og ótrúlega skemmtileg!!! Mamma kemur heim frá Danmörku í dag. Hún á að lenda seinni partinn í dag en ég er nú bara ekkert svo viss um að það verði lent á Akureyri. En helgina fyrir tveim vikum átti hún að fara en það var svo rosalega hvasst að fluginu var aflýst, þegar hún fór út bilaði annar hreyfillinn en hún átti að fara af stað 5 og það var ekki flogið af stað fyrr en um hádegið á sunnudeginum!!! Þessa sömu helgi á Laugardagskvöldið var ég að passa tvö krakka fyrir konu sem er að vinna með mömmu þannig að ég þekki hana ekki neitt. Ég átti að passa þessa krakka og svo á hún tveggja mánaða gamlan hvolp sem getur ekki verið einn þannig að ég þurfti að passa hann líka :D Hann er blandaður íslenskum fjárhundi og ég held líka beagle. Hann er æðislega sætur og algjör dúlla. Hann svaf hjá mér þangað til ég þurfti að fara heim :P Þegar mamma spurði mig þá sagði ég strax að ég myndi passa þau bara útaf hvolpinum!!!! :) En ég þarf að fara núna. See ya later!!! :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 13:00:03 / arna88

25. Október

Hæhæ, Ég var í stærðfræði prófi áðan og gjörsamlega skeit á mig í því og ég held að ég fái ekki meira en 3,5 en það var met að mér skuli hafa tekist að klára allar spurningarnar!!!! Ég hef misst mikið úr skólanum undanfarnar tvær vikur því að ég hef verið mjög slöpp en fór til læknis. Þegar hann var búin að skoða mig þá sagði hann að þetta væri ekki botnlanginn í mér og ég var ekkert smá feginn!!! En það er búið að snjóa meira og minna í tvo daga í röð hérna og reyndar er þetta þriðji dagurinn og snjórinn orðinn þokkalega mikill!!!! Veturinn er sem sagt greinilega komin. Vikan er hálfnuð og það er helgi eftir tvo daga!!!!!!!!!!! Ég fór í skýrnarveislu á laugardaginn þegar littla frænka mín var skýrð. Ég fer bráðum í aðra skýrn hjá annari frænku minni. Já það er svolítið mikið af stelpum í fjölskyldunni minni:D Amma er búin að vera veik í einhverja mánuði og þegar frænka mín sem verður bráðum skýrð fæddist vorum við mamma og Alma vorum uppá spítala og vorum að hugsa um að heilsa upp á hina ömmu mína því hún var á vakt á fæðingardeildinni þá hringdum við í afa til að athuga hvort hún væri ekki örugglega að vinna. Afi svaraði og sagði mömmu að skrýtna frænka hans pabba væri að fara að eiga. Við skildum ekkert hvað hann meinti og þá var það frænka okkar sem er 22 eða eithvað sem var að fara að eiga og þetta var 3. barnið hennar á þrem árum!!!!!!!!!! Og það skrítnasta er að þetta er í annað sinn í röð sem hún vissi ekki að hún væri ólétt!!!!!! En ég þarf að fara í tíma. see ya later


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 19:28:32 / arna88

ég á afmæli á morgunn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég var að lesa blogg á netinu hjá einhverri 12 ára bandarískri stelpu um íslenskar konur. Hún setur mikið útá íslenskar konur og segir t.d. að það sé ekki satt að upprunalegi hárlitur flestra kvenna á íslandi sé ekki ljós heldur að flestar séu með litað hár!!!!! svo var sett út á ýmislegt sem tengist skemtanalífinu á íslandi og fleira. Ef þið viljið skoða þetta nánar er þetta netfangið:  www.hatshepsut.mu.nu/.../2005_05_comments.php  En á morgunn á ég afmæli og verður sennilega versti afmælisdagur æfi minnar þar sem vatni verður hleypt á kárahnjúkavirkjun á morgunn :cry: En ég er mjög á móti henni vegna þess að ég er ættuð úr fljótsdal en það er dalurinn sem virkjuninn verður í. Fljótsdalur er einn af fallegustu stöðum á landinu og pabbi var þar í sveit hjá frændfólki mínu. Ég fór með foreldrum mínum og afa að skoða svæðið fyrir 2 vikum og þetta er rosaleg virkjun og þvílík eyðilegging á dalnum. Risastórir rafmagnsstaurar þarna sem eru skelfilega stórir og mjög ljótir. Ég verð að segja að þetta er í fyrsta skipti sem ég hlakka ekki til þess að eiga afmæli, þó að ég sé að verða 18 ára.:cry: :cry: :cry: :cry:


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 11:27:44 / arna88

skólinn byrjaður!!!

jæja þá er skólinn loksins byrjaður aftur!!!! :lol: Ég er ný byrjuð í þýsku og er búin að fara í tvo tíma ;) , Ég náði stærðfræðinni (loksins!!!!!!) í vor og er komin í næsta áfanga. Ég á líka afmæli á fimmtudaginn :haha:  og ætla að halda upp á það um helgina!!! en seinustu tvær vikurnar leiddist mér var ég að bilast úr spenningi og þá var sofið til hádegis og horft legið yfir sjónvarpinu!!! :haha: en það kom hundur í heimsókn til mín um daginn sem heitir ísadora og er cavalier hundur en sú sem á hana kom til að sýna okkur hana því við ætlum kanski að fá okkur cavalier hund!!!! :) En nú verð ég að drífa mig see ya later !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 18:28:38 / arna88

sumarfríið!!

hæ ég er ekki búin að vera að blogga í allt sumar því ég var svo upptekinn þangað til um miðjan júlí en síðan hef ég bara verið svo löt.. ekki auðvelt að vera að passa 20 krakkar frá 8-15 á daginn!! Ég er að vinna á leikskóla og það var mjööög nice fyrstu vikuna því að þá voru 8 krakkar á tveim deildum sem eru mikið sameinuð og tvær fyrstu vikurnar voru fleiri starfsmenn en krakkar og deildirnar voru þá mikið saman!!  Maður var orðinn frekar þreyttur á því að hafa ekkert að gera og stundum sat maður og horfði á krakkana leika sér, yddaði liti, fór yfir öll púslin sem til eru á þessum tveim deildum og athugaði hvort það vantaði kubba í þau , las andrés blöð og einn strákur sem vinnur á annarri deildinni var alltaf að leika sér með skobbarabolta og sofnaði einu sinni í sofanum sem er á deildinni minni :haha: Ég byrjaði að vinna um miðjan júlí vegna þess að þá kom leikskólinn úr sumarfríi og ég ákvað að byrja þá af því að fjölskyldan var búin að ákveða að fara í 2.vikur til Svíþjóðar og Danmerkur. Systir pabba bjó í sveitaþorpi sem heitir stongby, kirkby eða eitthvað svoleiðis(kann ekki að skrifa það rétt:haha:) og það er rétt hjá Lundi í Svíþjóð. Hún, kærastinn hennar og börnin hennar 4 bjuggu þar af því að kærastinn hennar fékk eitthvað 1.árs rannsóknarleyfi held ég  og þau fluttu út í fyrra og komu rétt á eftir okkur. Amma og afi "í Reynivöllum\'\' fóru til þeirra viku á undan okkur með systur ömmu, henni Díu. Ég er búin að ákveða að skrifa alla ferðasöguna í sér skjal og skýra hana "ferðasögur\'\' en þar ætla ég að segja frá öllum þeim ferðum sem ég hef farið í á ævinni(gangi mér vel!! :$) .Endilega kíkið á það og ekki gleyma að skrifa í gestabókina mína. See ya later :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 09:52:29 / arna88

Æðislegt veður um helgina!!!

Hæ hæ það var geðveikt gott veður um helgina og held að það hafi verið hátt í 18 stig hérna á Akureyri 8) Það er stærðfræðipróf á morgunn 8| þannig að ég þarf sko aldeilis að læra í dag!!! Það er munnlegt próf í frönsku í næstu viku, Dönsku próf eftir hálfan mánuð og í sömu vikunni byrja prófin!!! 8| Það er næstum mánuður þangað til ég fer til Danmerkur og Svíþjóðar!!! :P Það passar ótrúlega vel því að ef ég fæ vinnu í leikskóla þá byrja ég að vinna eftir sumarfríið í leikskólunum sem er búið einhverntíman um miðjan Júlí ;) En ég þarf að drífa mig í tíma.  See ya later!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 19:04:52 / arna88

bara mánuður í prófin!!!!!!!

Hæ hæ fyrirgefiði hvað það er langt síðan ég skrifaði síðast!! Búið að vera brjálað að gera hjá mér seinustu daga og bara vikur :D En páskafríið var æðislegt. Ég fór í bíó á Ice age og fleira skemmtilegt. Stærðfræðikennarinn setti reyndar dáldið met um daginn, hún kemur alltaf í skrítnum fötum og eitthvað þannig en loksins kemur hún í flottu pilsi 8) en í hverju kom hún í að ofan? einhverju sem passaði alls ekki við :haha: En svo bauð Villi sig fram í inspector scholae(formaður nemendaráðsins). Því miður vann hann ekki, sem hefði reyndar örugglega slegið met því að enginn sem er á 2.ári í MA hefur einhverntíma orðið Inspector Scholae. Það var virkilega sorglegt að sjá stjórnina kveðja í dag :cry: En ég hef samt ekkert fleira að segja í bili því ég þarf að fara að borða, ég er nefnilega í afmæli hjá frænku minni sem á afmæli 30. Apríl :haha: See ya later

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 15:40:23 / arna88

Hasta la victoria MA!!!!

Hæ, æðislegt að MA skuli hafa unnið gettu betur!!! :haha:  Ohh ég vildi að ég hefði farið suður!! :cry: En söngvakeppnin var skelfileg fyrir okkur í MA. Ég hafði ekki séð atriðið fyrr en í gær því ég fór ekki á söngvakeppnina. Atriðið var okkur til skammar :evil: Ég skil ekki af hverju það þurfti að fara í söngvakeppnina 8| En á föstudaginn var hringt á söngsal kl 11:30 og við fengum frí það sem eftir var af deginum út af því hversu vel okkur gekk í gettu betur 8) En ég verð samt að viðurkenna að ég skildi aldrei af hverju fólk þolir ekki Valdísi stærðfræði kennara þó að ég hafi aldrei þolað hana sjálf en í vikunni komst ég að því hvers vegna. Ég lenti í vandræðum með heimadæmin og ég þurfti hjálp frá frænda mínum en hann vinnur mikið og ekki séns að fá hann þennan dag og ég gat ekki skilað þessu einsog það leit út því að helmingurinn var eftir. Þegar ég mætti í tímann næsta dag og spyr hana hvort ég mætti skila strax klukkan 8 næsta dag spyr hún bara af hverju? Ég vissi ekki hvað ég átti að segja og sagðist ekki hafa náð að klára dæmin, þá sagði hún er ekki nóg að skila fyrir 17 í dag!!! ég var alveg okei :evil:  :cry: Ég þarf sko að vanda mig mikið svo ég falli ekki úr skólanum í vor, því ef ég fell í stærðfræði fell ég úr skólanum :cry: En ég er búin að blaðra nóg. Ég mun ekki blogga fyrr en 19. apríl því ég verð mjög upptekin í páskafríinu!! Þannig að ég segi bara gleðilega páska og see ya later :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 12:56:55 / arna88

MA í úrslitin!!!

hæ, hæ þetta var algjör snilld í gær þegar MA vann MH!!! Ég er pottþétt á leiðinni til Reykjavíkur að sjá úrslitin 8) Ég sótti um að vinna á leikskóla í sumar og ég vona svo að ég fái vinnu þó að mamma og pabbi þekki leikskólastjórana á 3 leikskólum á Akureyri 8) Vá það hefur skomm verið mjög mikið að gera en það hafa margir kennarar verið að setja fyrir milljón verkefni og líka þarf ég að vera búin með bók í næstu viku sme er ca 200 síður sem ég er ekki byrjuð á ..... uhmm 8| og svo þurfti ég að vinna seinasta Laugardag og Föstudaginn og Laugardaginn þar á undan:!: Ég er rétt núna að jafna mig eftir þessi viðbjóðslegu veikindi og þá meina ég að eyrnabólgan sem ég fékk er núna fyrst að lagast ég gleðifréttirnar að ég er farin að heyra eitthvað með því eyra :D Og jámm ég virðist núna hafa smitað alla nema Pabba því núna er systir mín veik :!: En jámm það er búið að snjóa hérna í 4-5 daga samfleitt og allt gjörsamlega á kafi.Endilega skrifið svo í gestabókina því það kemur mér mjög á óvart hversu margir eru að koma á síðuna mína og mig langar að vita hverjir það eru sem eru alltaf að kíkjá á hana hjá mér!! Það styttist svo í að ég fari að klára síðuna hjá mér, ég lofa því. En ég þarf að fara í frönsku og svo er bara komið helgarfrí!!!!!!!!!!!! See ya later :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 14:41:59 / arna88

skemmtilegur dagur með dönum!!

Hæ, hæ danirnir eru komnir og þeir eru bara fínir. Það er svo fyndið að þegar maður reynir að skilja eitthvað sem þeir eru að segja þá skilur maður ekki neitt því þeir tala viðbjóðslega hratt og óskýrt :whut: en það var ótrúlega fyndið áðan þegar ein stelpa úr mínum bekk var að vinna verkefnið sitt með annarri íslenskri stelpu og tveim dönskum strákum og svo fór hún að herma eftir stráknum þegar hann las allveg einsog danar myndu segja eitthvað ákveðið orð og svo kom það kanski mjög fyndið útúr henni eða hún gat ekki sagt það rétt 8| svo tók hún sig til og lét hann segja einhverja þvílíkt langa setningu og þeir áttu þvílíkt erfitt með að segja hana :haha: En áðan fórum við á skauta með þeim og það var svo fyndið að sjá þessa dönsku stráka gera sig að hálfgerðum hálvitum þar sem þeir fóru að elta hvorn annan á svellinu og fóru bara í hálfgert skautahlaup hjá þeim og svo auðvitað hrundu þeir hver af öðrum :haha: Svo alltíeinu voru dregin fram mörk og þeir fóru í íshocký og það tóku tvær stelpur með þátt í því og þeir voru hlaupandi um allt og runnu á hausinn einsog ég veit ekki hvað!!! 8) ég verð að viðurkenna að ég var að fara í fyrsta skipti í 4 ár á skauta :^) En var samt ágæt og örugglega í fyrsta skipti sem ég var langt frá því að detta :haha: og guð hvað margir af þessum strákum eru stir og sumir ofboðslega krúttlegir!!!!! :D en snarruglaðir 8| það kom sko í ljós á skautunum!!!!  en svo eru þessir danar alltaf að segja lol eða eikkað 8| dáldið skrítið. Ég er með stelpu sem heitir íris, annarri sem heitir Þórhalla og dana sem heitir Morten í hóp að tala um íþróttir. Morten fékk kast áðan þegar tölvan loggaði sig útaf passwordinu hjá írisi og bölvaði ekkert smá á dönsku :haha: íris kom ekki fyrr en 1 klst seinna og hann var í mjög vondu skapi þarna fyrst og ekkert smá sem hann bölvaði. En ég verð að drífa mig heim núna see ya.......ser dig!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 12:02:26 / arna88

Danirnir koma!!!!!!!

Jæja mamma og pabbi eru komin heim og gáfu mér gjafir :haha: Systir mín hún Alma á afmæli í dag og er 12 ára en reyndar ekki fyrr en eftir rúma 2 klukkutíma verður hún 12 ára. MA vann MR í gettu betur :haha: ég var í algjörri sigurvímu á fimmtudagskvöldið  8). Einsog flestir vita þá er ég mikil Liverpool manneskja og það ríkti mikil sorg yfir öllum eftir að þeir töpuðu í gær og duttu úr meistaradeildinni :cry: en þeir hefðu getað varið titilinn því þeir urðu meistarar í fyrra :D Enskuliðin detta út í haugum úr þessari keppni því Chelsea tapaði kvöldið áður :haha: á móti mínu liði Barcelona 8) Svo fara danirnir að koma í skólann :evil: Ég hlakka í rauninni ekkert svo til því að við erum í einhverju samstarfi við þá og eigum að vera í 4 manna hópum tveir íslendingar og tveir danir og gera hópverkefni 8| Það eina sem bjargar þessu er að ég er í hópi sem gerir verkefni um íþróttir :!: Ég er ekki góð í dönsku og því verður þetta virkilega erfitt og kanski ekki einu sinni skemmtilegt því þar að auki hef ég aldrei séð þessa krakka og það eru tveir danskir strákar í hópnum mínum og stelpa sem ég þekki ekkert sem er í a-bekknum:evil: Annars er ekkert fleira að gerast hjá mér og ég hef ekkert fleira að segja. bæ, bæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 12:57:37 / arna88

Allir hlæja á öskudaginn!!

Jæja það er bara öskudagur í dag!!!! Við í 2b unnum machintos bauk fyrir flottasta bekkinn sem er í búningi :haha: Við vorum playboy kanínur!!!!!!! Það var reyndar snilldar hugmynd af því að við erum 13 manns í bekknum og 12 stelpur og einn strákur!!!!!!!  Villi greiið er í silkislopp og með staf og allar stelpurnar hanga svona í honum!!!!  :haha:  Það var sleginn köttur úr tunnu sem ég missti reyndar af því ég var að græja mig fyrir búninga keppnina!!! Það var líka limbó og þar var einn í pappakassa sem var svampur sveinsson 8) Svo í ensku áðan eyddum við fyrstu 20 mín af  fyrri tímanum til að taka myndir af bekknum. Í seinni tímanum var hljóðfræðitími og við átum machintos í tímanum8) Reyndar tók ein í bekknum sig til og hvolfdi úr bauknum og þá fór 15. mín í að taka myndir af namminu!!! 8| :!: Svo var namminu skippt á milli okkar og hver fékk örugglega hátt í 20 mola 8) Svo fóru mamma, Pabbi og stelpurnar til svíþjóðar í gær og koma ekki fyrr en á Mánudaginn :!:  ;) 8) :haha: En ég þarf að fara núna en vil endilega minna á að taka þátt í könunninni minni, skrifa í gestabókina og kanna hvað þið þekkið mig vel en allavega see ya later  :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 12:19:22 / arna88

PLEASE SKRIFIÐ Í GESTABÓKINA!!!

Hæ ég er að verða dáldið pirruð á að engin sé að skrifa í gestabókina hjá mér og það er virkilega leiðinlegt :cry: En allavega þá er valentínusardagurinn í dag!! Ekkert sérstakt í rauninni fyrir mig þar sem ég er ekki með neinum ;) En Páll Óskar er núna í skólanum og ég ætla að fara að sjá hvað er að gerast frammi í kvosinni!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3